Kínverjinn/auðmaðurinn

Enginn stjórnmálamaður vill styggja Kínverjann sem vill fjárfesta í ferðaþjónustu,hann ætlar að byggja hótel af flottustu gerð með tilheyrandi. Fyrir okkur sem byggja þetta land, er aðalatriði að við höfum eignarhald á öllu sem við teljum vera auðlind, land er auðlind að sjálfssögðu. Ef hann gerir sér að góðu að fjárfestingin er að mestu eða öllu leyti í ferðaþjónustu þarf hann ekki að eiga landið,við leigjum honum afnotarétt af landinu. Það tryggir að Íslendingar hafa eignarhald og yfirráð á þeim auðlindum sem kunna að vera til staðar í landinu. Ég vara við stjórnmálamönnum/konum sem vilja stökkva á þetta eins og hverja aðra gullnámu. Stjórnvöldum ber að hugsa um almannahagsmuni og tryggja með lögum að þeir gangi fyrir sérhagsmunum. Forsætisráðherra segir að regluverkið sé nægjanlegt til að við þurfum ekkert að óttast, Allt hrundi á landinu góða fyrir þrem árum síðan og þá heyrðust einmitt raddir af þessum toga um að allt væri í lagi, úrtölufólki var bent á að sækja sér endurmenntun, þetta sama fólk situr í sölum alþingis og hvetur til þess að landið verði selt, hér vantar heldur betur endurmenntun eða hvað. Auðmenn hafa eina hugsun sameiginlega umfram aðrar og það er hagnaður og þeim er nákvæmlega sama hvernig hann er fenginn, þess vegna eru þeir auðmenn. Kári Jónsson Sandgerði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Það er ekki eðlilegt og á hreint ekki að vera sjálfgefið að erlendir auðmenn geti keypt hér upp stórann part af landinu.

Ég er gáttaður á ummælum Jóhönnu þegar hún segir að óathuguðu og órannsökuðu máli, að kaup Kínverjans séu hið besta mál og að óþarfi sé að hræðast fjárfestinga útlendinga hér á landi.

hilmar jónsson, 30.8.2011 kl. 20:01

2 Smámynd: Ólafur Ólafsson

Sammála Kári...

Ólafur Ólafsson, 30.8.2011 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kári Jónsson

Höfundur

Kári Jónsson
Kári Jónsson
Áhugamaður um þjóðmál og dægurmál líðandi stundar.Telur sig hafa fullt frelsi til að gagnrýna og hrósa hverju sem er.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...sunset
  • ...winter
  • ...ater_lilies
  • ...blue_hills

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 511

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband