21.8.2011 | 13:08
Að koma með allt að landi
Ef það er hægt að nefna eitthvað jákvætt í sjávarútvegi þá er það að vinnsluskip eiga að koma með hausa og hryggi og lifur að landi, að vísu með 1árs aðlögun,gott engu að síður. Verðmæti aflans sem um ræðir skiptir milljörðum, útgerðarmenn hafa ávallt haldið því fram að óverulegur hluti aflanns sé hent í sjóinn aftur, og lýst fyrirlitningu á þeirri skoðun að allt skuli koma í land, og sé í reynd ógerningur og líka óarðbært. Forstjóri Lýsis blés á þessi ummæli og sagðist geta aukið útflutning verulega, ég vona að Lýsi verði áfram alvöru fyrirtæki þegar fram í sækir,að ekki verði búið að draga máttinn úr því í gegnum spillingu bankakerfisins. Mikilvægt er að hausar,hryggir og lifur verði seld á markaði til að fá rétt verð á hráefnið, fjölmörg fyrirtæki geta boðið í þetta hráefni og gert úr góða afurð, það skapar vinnu og gjaldeyri og er það ekki einmitt það sem þjóðinni vantar sárlega núna. kári Jónsson Sandgerði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Kári Jónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 663
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
like á þig Kári.
Ólafur Ólafsson, 21.8.2011 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.