17.5.2011 | 00:30
Sendisveinar og vikapiltar sérhagsmuna
Birgir Þór Runólfsson skipar sér við hlið ÞP,EKG,R'A sem talsmaður sérhagsmuna, þeir eiga það sameiginlegt að allir tala þeir um að leyfa kvótakerfinu að þróast á markaðslegum forsendum,ef það væri frá A-Ö eins og sagt er, þá væri ég sammála þeim. sjaldan hef ég orðið vitni af jafnmikilli hræsni og þessum málflutningi,afbökunin er dæmalaus.Það er staðreynd að aflaheimildum er úthlutað til 1árs í senn,ekki ótímabundið eins og Birgir og co halda fram,þannig að rekstraleg óvissa er lágmörkuð með samningaleiðinni.Það er staðreynd að Líú vill að aflaheimildir séu framseljanlegar,af því að þá geta þeir fénýtt þær.Það er staðreynd að Líú vill ekki frjálst fiskverð,af því að þeir vilja að sjómenn greiði fyrir hagræðinguna,af samþjöppun aflaheimilda.það er staðreynd að það eru afskrifaðar skuldir í stórum stíl þó að auðlindarentan sé margreiknuð 45miljarðar.Þess vegna er það staðreynd líka að 'Islenskur sjávarútvegur er ríkisstyrktur svo um munar,ég ætlast ekki til að pilsfaldkapitalistar og sovétkommar séu mér sammála.Verkin tala 20ár aftur í tíman.það er staðreynd að atvinnufrelsi, jafnræði og mannréttindi eru ekki höfð í öndvegi.Það er staðreynd að ef Líú beitti sér fyrir markaðslausnum af einlægni stæði þjóðin með þeim í dag. Græðgin er lífhættuleg. Kári Jónsson Sandgerði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Kári Jónsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.